Fara beint í efnið

Sérfræðingar á sviði eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu hjá embætti landlæknis meta öll aðsend erindi. Málum er forgangsraðað eftir alvarleika og tilefni hverju sinni. Tilkynning um í hvaða farveg mál fer er send þegar málsmeðferð hefst. Einhverjar vikur geta liðið þar til erindi er tekið til umfjöllunar.

Yfir 500 kvörtunar- og athugasemdamál eru nú til úrvinnslu hjá embætti landlæknis. Umtalsverðar tafir eru á allri málsmeðferð vegna málafjölda og manneklu. Málsmeðferð í kvörtunarmálum getur tekið allt að fjögur ár eins og staðan er í dag, allt eftir umfangi mála. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi staða kann að valda.

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis