Fara beint í efnið

Fylgigögn/skjöl þurfa að vera frumgögn á PDF formi, ljósrituð eða innskönnun í lit og í hárri upplausn svo þau sýni skýrt allar upplýsingar sem koma fram á frumgagninu. Sjá nánari útlistun á gagnaskilum:

  • Skönnun/ljósritun þarf að vera hornrétt þar sem ljóslestri er beitt við meðferð gagna hjá embættinu. Jafnframt þarf skönnun/ljósritun að ná yfir allt sjáanlegt efni á síðum, einnig ef eitthvað er skrifað á jaðar síðunnar.

  • Allar síður þurfa að fylgja hverju skjali, jafnvel þótt aðeins sé vísað/vitnað í hluta þeirra.

  • Blaðsíður þurfa að vera merktar með raðnúmeri. Ef frumgögn eru ekki með síðunúmerum, þarf að merkja þau með raðnúmeri og sjá til þess að þau séu í réttri röð.

  • Afrit af sjúkraskrá þurfa að innihalda öll eyðublöð, nótur, rannsóknaniðurstöður og færslur, þar með talið handskrifuð blöð, vottorð, myndir o.s.frv. T.d. þurfa öll sjúkraskrárgögn sem tilheyra legu/meðferð/skurðaðgerð að fylgja, sem tilheyra tilfellinu, þar með talið hjúkrunarskráningar, samþykkiseyðublað, skráning íhluta, skráning „time-out“, atvikaskráning og svo framvegis. Þess skal getið ef einhverju er sleppt og þá hvers vegna.

  • Ef ekki er hægt að uppfylla ofangreint eða gögnum er sleppt, skal þess getið með skýringum.

  • Óskýrum/ólæsilegum/ófullkomnum afritum gagna verður hafnað nema sendandi rökstyðji að betri afrit sé ekki hægt að útvega.

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis