Fara beint í efnið

Skimun á meðgöngu

Ljósmóðir kannar skimunarsögu konu í fyrsta viðtali meðgöngu. Ef kona hefur ekki sinnt boði um skimun er ráðlagt að ljósmóðir taki leghálsýni skv. skimunarleiðbeiningum eftir aldri eða vísi konu áfram til sýnatöku á heilsugæslu eða hjá kvensjúkdómalækni.

Ef kona fær boð um skimun á meðgöngu og hefur ekki verið í sérstöku eftirliti vegna forstigsbreytinga má fresta skimuninni þar til eftir fæðingu.

Óeðlileg leghálssýni hjá konum á meðgöngu

  • Markmið með leghálssýni er að útiloka ífarandi vöxt, krabbamein. Fylgja sömu leiðbeiningum og hjá konum sem ekki eru þungaðar.

  • Konur með óeðlileg leghálssýni þar sem ábending er fyrir leghálsspeglun ættu að fá tíma til leghálsspeglunar eins fljótt og auðið er þar sem skoðun snemma í þungun er auðveldari.

  • Ákjósanlegur tími fyrir fyrstu leghálsspeglun í þungun er í viku 13-14.

  • Kvensjúkdómalæknir með reynslu í leghálsspeglunum ætti að framkvæma leghálsspeglun á þunguðum konum.

  • Leghálsspeglun skal metin á sama hátt og hjá ekki þunguðum konum með Swedescore til hliðsjónar.

  • Stilla má blæðingu eftir sýnatöku með lapis, monsell lausn, spongostan eða tróð í leggöng.

  • Ekki skal gera leghálsskaf.

Eftirlit með leghálsspeglun á meðgöngu

  • Konur sem greinast með hágráðu breytingar ≥ CIN 2 snemma á meðgöngu skal fylgja eftir með leghálsspeglun og e.t.v. vefjasýnum á fyrsta þriðjungi og við lok annars þriðjungs meðgöngu. Konur sem eru lengra komnar í meðgöngu skal fylgja eftir með leghálsspeglun eftir fæðingu.

  • Konur sem fyrir meðgöngu hafa fengið ráðleggingar um keiluskurð sem ekki hefur verið framkvæmdur eða í eftirliti vegna CIN 2 breytinga þarf að taka afstöðu til eftirlits á meðgöngu í upphafi hennar.

  • Hægt er að bíða með eftirlit hjá konum sem þurfa eftirlit með leghálssýni eða leghálsspeglun eftir keiluskurð eða ómeðhöndlað CIN 1 þar til eftir fæðingu.

  • Konum með AGC skal fylgja eftir með á sama hátt og konum sem ekki eru þungaðar.

  • Konum með AIS skal fylgja eftir á meðgöngu með leghálsspeglun. Eftirlit skal vera einstalkingsmiðað og e.t.v. í samráði við krabbameinsskurðlækna á kvennadeild Landspítala.

Eftirlit eftir fæðingu

Konur sem hafa þurft leghálsspeglun á meðgöngu skal fylgja eftir með leghálsspeglun eða keiluskurði 6-12 vikum eftir fæðingu.