Fara beint í efnið

Erlent samstarf

Embætti landlæknis tekur þátt í margvíslegu alþjóðlegu samstarfi með alþjóðastofnunum og samtökum á Norðurlöndum, í Evrópu og á heimsvísu.

Norrænt samstarf

  • Utanspítalaþjónusta á Norðurlöndum. Vinnuhópurinn Nordisk samarbeid om standardisering, datainnsamling og benchmarking av prehospitale tjenester staðlar viðmið og safnar gögnum svo hægt sé að mæla, meta og bera saman utanspítalaþjónustu á Norðurlöndunum.

  • Svalbarðahópurinn. Sóttvarnalæknir er fulltrúi Íslands í norrænum samstarfshópi um viðbúnað við heilsuvá ásamt fulltrúa frá almannavörnum.

  • Hópur um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi (One Health Strategy Group), bóluefni, sjaldgæf mótefni og anti-toxín. Sóttvarnalæknir er fulltrúi Íslands í hópunum.

  • NOMESKO (Nordisk Medicinalstatistik Komité) er norræn nefnd um heilbrigðistölfræði sem vinnur að því að skapa grundvöll fyrir samanburð heilbrigðisupplýsinga milli Norðurlandanna.

  • Norræna skráningarmiðstöðin (Nordisk senter for klassifikationer i helsetjenesten)
    Miðstöðin er viðurkennt samstarfssetur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) á sviði flokkunarkerfa (Collaborating Centre in Nordic Countries for the WHO Family of International Classifications, WHO -FIC). Þar er unnið að samhæfingu varðandi skráningu í heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndum á grunni alþjóðlegra og norrænna flokkunarkerfa. Á vegum miðstöðvarinnar er virk þátttaka í þróun alþjóðlegra flokkunarkerfa WHO, bæði með stjórnarsetu vegna WHO-FIC og beinni þátttöku í þróun þeirra.

  • Heilbrigðisupplýsingatækni (Nordic Council of Ministers eHealth Group). Tilgangur hópsins er að styðja við Norrænt samstarf í upplýsingatækni á heilbrigðissviði.

  • Samræming staðla (Nordic eHealth Research Network (NeRN)

  • Undirhópur Nordic Council of Ministers eHealth Group, vinnur að samræmingu á stöðlum til að hægt sé að fá raunhæfan samanburð á stöðu upplýsingatækni á heilbrigðissviði á milli Norðurlandanna til notkunar fyrir stefnumótun stjórnvalda í þeim málum.

  • Samræming staðla fyrir miðlun sjúkraskrárupplýsinga (Nordic eHealth Standardization Group) er undirhópur Nordic Council of Ministers eHealth Group og vinnur að samræmingu á stöðlum er viðkoma miðlun sjúkraskrárupplýsinga á milli aðila í heilbrigðisþjónustu, sem og skráningu í sjúkraskrár.

  • Fjarheilbrigðisþjónusta (VOPD Working Group) Samstarfsverkefni á milli Norðurlandanna á vegum Nordic Council of Ministers um fjarheilbrigðisþjónustu. Verkefninu er ætlað að bera kennsl á vel virkandi lausnir, sem styðja við fjarheilbrigðisþjónustu og finna leiðir til að ýta undir notkun þeirra.

  • Starfsleyfi löggiltra heilbrigðisstétta. Samstarf um starfsleyfi löggiltra heilbrigðisstétta sem byggir á samningi landanna um gagnkvæma viðurkenningu á starfsleyfum heilbrigðisstarfsmanna.

  • NOMBIR (Nordic Medical Birth Register). Embætti landlæknis tekur þátt í norrænu samstarfi fæðingaskráa á Norðurlöndunum. Samvinna við aðrar fæðingaskrár eykur möguleika á samanburði á fæðingarútkomum milli Norðurlandanna.

  • Norrænu líffæraígræðslusamtökin Scandiatransplant

  • Norrænt samstarf um öryggi sjúklinga

  • Norrænt samstarf um áfengis- og vímuvarnir

  • Norrænt samstarf um geðheilsu og vellíðan

  • Norrænt samstarf um sjálfsvígsforvarnir

  • Norrænt samstarf um sóttvarnir

  • Norrænt samstarf um næringu

  • Norrænt samstarf á sviði hreyfingar

  • Norrænt samstarf á sviði tóbaksvarna

Evrópusamstarf

  • EPSO (European Partnership for Supervisory Organisations in Health Services and Social Care) er óformlegur samstarfsvettvangur eftirlitsstofnana í Evrópu.

  • Gagnamiðlun til Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC -The European Centre for Disease Prevention and Control), sem greinir, metur og miðlar upplýsingum um smitsjúkdóma. Stofnunin starfar með stofnunum innan Evrópu og á heimsvísu.

  • PaRIS-verkefni (Patient- Reported Indicators Survey). Alþjóðleg könnun á útkomu og reynslu sjúklinga með langvinnan heilsufarsvanda (An International Survey on Outcome and Experiences of Patients with Chronic Conditions).

  • Stýrihópur Evrópusambandsins um heilsueflingu og forvarnir (European Commission Steering Group on Health Promotion, Disease Prevention and Management of Non-Communicable Diseases (SGPP).

  • Heilbrigðisáætlun Evrópusambandsins. Samstarf styrktaráætlunar Evrópusambandsins í heilbrigðismálum (EU Health programme 2014 – 2020. National focal point meeting).

  • Evrópuverkefnin JA CHRODIS og JA CHRODIS+ stóð frá september 2017 til ágúst 2020. Meginmarkmið verkefnisins var að styðja Evrópulönd í að innleiða árangursríkt starf á sviði heilsueflingar, forvarna og meðferðar á langvinnum sjúkdómum.

  • Evrópskt samstarf á sviði tóbaksvarna. Joint action on Tobacco (JATC).

  • Samstarf um áfengis- og vímuvarnir—Pompidou

  • Evrópuverkefnið UPRIGHT sem stóð frá janúar 2018 til desember 2021. Meginmarkmið verkefnisins er að þróa námsefni fyrir unglinga, sem stuðlar að vellíðan með því að efla seiglu þeirra og getu til að takast á við krefjandi verkefni unglingsáranna. Embættið leiddi vinnupakka 6; Dissemination, outreach and policy recommendations.

  • Evrópska Matvæla– og öryggisstofnunin (EFSA). Scientific Network on Food Consumption Data.

  • Samstarf um hreyfingu til heilsubótar. HEPA Europe.

  • Samtök um heilsueflandi skóla í Evrópu (Schools for Health in Europe Network Foundation, SHE).

  • Evrópusamtök um jákvæða sálfræði (European Network for Positive Psychology).

  • JA ImpleMENTAL er samevrópskt rannsóknarverkefni styrkt af H2020 rammaáætlun (JA-02-2020/HADEA). Tuttugu og ein evrópuþjóð tekur þátt í verkefninu ásamt Íslandi en fulltrúar Íslands í verkefninu koma m.a. frá heilbrigðisráðuneytinu og embætti landlæknis. Verkefnið hófst formlega haustið 2021 og mun standa í þrjú ár. Verkefnið er viðamikið en Ísland tekur þátt í þeim hluta þess sem snýr að því að innleiða þekkingu í sjálfsvígsforvörnum byggt á austurríska forvarnarmódelinu “SUPRA”.

  • JA NFP4Health - Embætti landlæknis tekur þátt í verkefninu sem miðar að því að móta og samræma starf landstengiliða fyrir EU4Health styrktaráætlunina.

  • WHO-FIC European Network. Starfsmaður miðstöðvar rafrænna heilbrigðislausna hefur frá árinu 2022 verið fulltrúi Íslands í Evrópusamstarfi um Alþjóðleg flokkunarkerfi WHO í heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að styrkja Evrópulöndin í innleiðingu og notkun flokkunarkerfa sem gefin eru út og viðhaldið af WHO.

  • eHealth Network. Tveir starfsmenn miðstöðvar rafrænna heilbrigðislausna eru fulltrúar Íslands í eHealth Network á vegum Evrópusambandsins sem er sameiginlegur vettvangur Evrópulanda um stafræna heilbrigðisþjónustu yfir landamæri. Starfsmennirnir eru einnig fulltrúar í ýmsum undirhópum á vegum Evrópusambandsins varðandi heilbrigðisþjónustu yfir landamæri.

  • EU-JAMRAI 2 (Joint Action Antimicrobial Resistance and Health-care Associated Infections 2) er samevrópskt verkefni fjármagnað af Heilbrigðisáætlun Evrópusambandsins (EU4Health). Sóttvarnalæknir leiðir þátt Íslands en heilbrigðisráðuneyti, Matvælastofnun og Umhverfisstofnun eru samstarfsaðilar. Markmið JAMRAI 2 eru aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis hjá fólki, dýrum og í umhverfi, í anda Einnar heilsu. Verkefnið snýr að sýklalyfjagæslu, sýkingavörnum, vöktun, aðgengi að sýklalyfjum og vitundarvakningu um sýklalyfjaónæmi.

  • JA PreventNCD (Joint Action Prevent Non-Communicable Diseases) er samstarfsverkefni 25 Evrópuþjóða og koma fulltrúar Íslands frá embætti landlæknis, forsætisráðuneytinu, Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Markmið verkefnisins er að innleiða árangursríkar aðgerðir til að koma í veg fyrir ósmitbæra sjúkdóma, eins og krabbamein, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri, stýrir verkþætti um velsældarhagkerfi og Sólveig Karlsdóttir, verkefnastjóri, stýrir verkþætti um miðlun upplýsinga fyrir allt verkefnið.

  • EU-HIP (strengthening Member States’s IT systems ensuring interoperability with HERA’s IT platform for intelligence gathering). Styrkur fjármagnaður af Heilbrigðisáætlun Evrópusambandsins (EU4Health) til 14 ríkja ESB/EES til að styrkja upplýsingatæknikerfi ríkjanna m.t.t. vöktunar og gagnasöfnunar vegna heilsuógna þvert á landamæri vegna smitsjúkdóma, eiturefna, geislavirkni (CBRN). Sóttvarnalæknir leiðir þátt Íslands í samstarfi við miðstöð rafrænna heilbrigðislausna (MRH).

Alþjóðlegt samstarf

  • Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO). Sóttvarnalæknir er lögum samkvæmt landstengiliður vegna alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar, sem er alþjóðasamningur við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), sem Ísland er aðili að. Sóttvarnalæknir fylgist með aðvörunum frá WHO og metur hvort viðeigandi sé að mæla með að gripið sé til sóttvarnaráðstafana. Þá kemur sóttvarnalæknir upplýsingum áleiðis til WHO um atburði sem geta ógnað lýðheilsu og varða alþjóðasamfélagið.

  • Samstarf við heilbrigðistölfræði gagnagrunninn Health For All Database (HFA-DB) sem haldinn er hjá Evrópuskrifstofu WHO.

  • Gagnamiðlun í heilbrigðistölfræðigrunn OECD.

  • Samstarf á sviði næringar hjá WHO.

  • Vinnuhópur OECD varðandi val á gæðavísum, söfnun gagna, túlkun þeirra og miðlun (Working Party on Health Care Quality and Outcomes). Hópur sinnir rýni, ráðgjöf og miðlun gagnvart stofnuninni.

  • Alþjóðlegt fagorðasafn. Samstarf við alþjóðlegu samtökin SNOMED-CT International, sem eiga og reka eitt stærsta alþjóðlega fagorðasafn á sviði heilbrigðismála sem er í notkun í dag.

  • Alþjóðlegt samstarf eftirlitsaðila.