Fara beint í efnið

Er barnið þitt bólusett?

Hvað kostar bólusetning? Almennar barnabólusetningar eru öllum börnum sem búsett eru á Íslandi að kostnaðarlausu.

Hvar er bólusett? Almennar bólusetningar barna fara fram á öllum heilsugæslustöðvum og í grunnskólum. Finndu heilsugæsluna sem er næst þér á Heilsuveru til að panta tíma í bólusetningu fyrir barnið þitt.

Bólusetningar bjarga lífum barna. Ef upplýsingar um bólusetningar sem gerðar hafa verið erlendis hafa glatast er mælt með bólusetningu frá grunni, barninu að kostnaðarlausu. Aukaskömmtum er haldið í lágmarki til að hindra sóun, en þeir eru ekki skaðlegir.

Skráning bólusetninga. Bólusetningar sem barn hefur fengið á Íslandi er hægt að sjá á Mínum síðum Heilsuveru (www.heilsuvera.is). Einnig eru bólusetningarnar skráðar í skírteini til að geyma heima.

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis