Fara beint í efnið

Leiðbeiningar við ritun dánarvottorða

Skráning rafrænna dánarvottorða - leiðbeiningar

Dánarvottorðið

Dánarvottorðinu er skipt í tvo hluta. Annars vegar eru stjórnsýslulegar upplýsingar eins og fullt nafn, kennitölu, kyn, hjúskaparstaða, lögheimili, dánarstað og dánardægur hins látna.

Hins vegar eru færðar inn læknisfræðilegar upplýsingar um dánarorsakir og hvernig dauða bar að.

Upplýsingarnar um dánarmein eru kóðaðar samkvæmt ICD-10, alþjóðlegri tölfræðiflokkun sjúkdóma og skyldra heilbrigðisvandamála, í samræmi við leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og gögn færð í dánarmeinaskrá landlæknis.

Dánarvottorð ritar sá læknir sem skoðar líkið eða sá sem ber ábyrgð á því að líkið sé skoðað. Hafi andlát verið tilkynnt lögreglu má ekki rita dánarvottorð fyrr en hún hefur ákveðið að ekki sé ástæða til réttarlæknisfræðilegrar líkskoðunar eða réttarkrufningar. Ef réttarlæknisfræðileg líkskoðun er gerð skal dánarvottorð ritað af lækninum sem tók þátt í skoðuninni.

Læknir sem framkvæmir réttarkrufningu ritar dánarvottorð.

Læknir sem kvaddur er til vegna líkskoðunar skal gera lögreglu viðvart ef:

  1. ætla má að andlát tengist refsiverðu athæfi, sjálfsvígi eða andláti af völdum slyss,

  2. einstaklingur hefur fundist látinn,

  3. dauðsfall er óvænt,

  4. einstaklingur andast í fangelsi eða á öðrum áþekkum stað eða

  5. ætla má að dauðsfall megi rekja til mistaka, vanrækslu eða óhappatilviks við læknismeðferð.

Dánarvottorð skal vera vandlega útfyllt og allar upplýsingar sem eru aðgengilegar við útfyllingu dánarvottorðs skulu færðar í viðeigandi reiti á vottorðinu. Reitir til útflyllinga eru á formi fellilista, dagsetninga og frjáls texta. Leiðbeiningar eru að finna í textareitum hvaða upplýsingar skulu skráðar.

Skráningaratriði stjórnsýslulegra upplýsinga

Skráningaratriði læknisfræðilegra upplýsinga. Ætlaðar til skráningar í dánarmeinaskrá embættis landlæknis



Þjónustuaðili

Embætti land­læknis