Fara beint í efnið

Fjölmargir smitsjúkdómar eru landlægir í suðlægum löndum, einkum í hitabeltinu. Rétt er að undirbúa ferðir á þau svæði vel, ráðfæra sig við lækni um þá heilsufarslegu hættu sem kann að vera fyrir hendi og hvaða bólusetningar eru nauðsynlegar þegar farið er á þessi landssvæði. Enda þótt bólusetningar geti verið mikilvægar ferðamönnum er ekki er síður mikilvægt að huga að ýmsum almennum atriðum í tengslum við ferðir til annarra landa.

Hvar er bólusett?

Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar getur ráðlagt fólki hvort og þá hvaða bólusetningu það þarf þegar það fer til útlanda. Hægt er að hafa samband við netspjall Heilsuveru eða við Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar í síma 513-1700 til að fá ráðgjöf. 

Ferðabólusetningar eru gerðar á öllum heilsugæslustöðvum, í Álfabakka 14a, Reykjavík og öðrum aðilum sem fengið hafa til þess leyfi frá sóttvarnalækni s.s. Vinnuvernd, Kópavogi og Heilsuvernd, Kópavogi.

Bólusetningar 

Erfitt er að gefa einhlítar ráðleggingar um bólusetningu ferðamanna. Þeir þættir sem ráða því hvort og með hvaða bóluefni viðkomandi verði bólusettur eru:

  • Saga um fyrri bólusetningar

  • Til hvaða lands og landsvæðis er verið að fara?

  • Hversu lengi mun viðkomandi dvelja í landinu og við hvaða aðstæður?

  • Hversu algengir eru sjúkdómar sem bólusett er gegn á ferðasvæði viðkomandi?

Bólusetningar ferðamanna

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis