Fara beint í efnið

Öndunarfærasýkingar. Vikur 16 og 17 árið 2024

2. maí 2024

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga hérlendis og innlagna vegna þeirra í viku 16 og 17 og staðan í Evrópu reifuð.

Öndunarfærasýkingar. Nýtt tölublað

Inflúensa er enn í nokkuð stöðugri dreifingu og hefur fjöldi tilfella sveiflast eftir vikum. Fáir greinast með COVID-19 og RSV um þessar mundir.

Í viku 16 lágu 23 einstaklingar á Landspítala með inflúensu og hafa þeir ekki verið fleiri í allan vetur. Í heildina lágu 36 einstaklingar á Landspítala með eina af sex algengustu öndunarfæraveirunum í viku 16. Í viku 17 lágu 23 einstaklingar inni öndunarfæraveirusýkingu, þar af átta með inflúensu.

Á undanförum fjórum vikum (til og með viku 17) hafa 16 einstaklingar á aldrinum 2–39 ára greinst með kíghósta hér á landi, flestir á höfuðborgarsvæðinu. Eru þetta fyrstu tilfellin sem greinst hafa hérlendis síðan 2019.

Tvö tilfelli mislinga greindust hér nýlega, þau fyrstu síðan árið 2019, en engin önnur tilfelli hafa greinst út frá þeim.

Sóttvarnalæknir