Fara beint í efnið

Öndunarfærasýkingar. Vika 10 árið 2024

14. mars 2024

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Öndunarfærasýkingar. Nýtt tölublað

Greiningum á COVID-19 og RSV hefur farið stöðugt fækkandi frá áramótum en inflúensa er enn í nokkuð stöðugri dreifingu. Langflest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa verið af inflúensustofni A.

Einstaklingum inniliggjandi á Landspítala með öndunar­færaveirusýkingar hefur fækkað frá áramótum. Enginn lá á Landspítala með COVID-19 síðustu tvær vikur.

Bæði mislingar og hettusótt hafa borist til landsins nýverið. Hingað til hafa sjö hettusóttartilfelli verið greind á þessu ári og eitt tilfelli mislinga. Bólusetningarátak er yfirstandandi hjá heilsugæslunni til að draga úr áhrifum beggja atvika, fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndunarfærasjúkdóma í 10. viku ársins 2024.

Sóttvarnalæknir