Fara beint í efnið

Alþjóðlegi hamingjudagurinn 2024 – málþing um hamingju unga fólksins

20. mars 2024

Í tilefni af Alþjóðlega hamingjudeginum 2024, miðvikudaginn 20. mars, standa embætti landlæknis, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Samband íslenskra sveitarfélaga, Festa - miðstöð um sjálfbærni og Endurmenntun Háskóla Íslands að málþingi í hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 13:00–16:00.

Hamingja unga fólksins - málþing 20. mars 2024

Umfjöllunarefnið í ár beinist að ungu fólki en yfirskrift málþingsins er „Hamingja unga fólksins - hvernig undirbúum við þau sem best fyrir lífið?“ Áhersla þingsins í ár verður á vellíðan ungmenna og þátttöku þeirra á atvinnumarkaði.

Dagskrá

13:00 - Opnun

  • Ávarp - Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra

  • Hamingjutölur - Hvernig líður unga fólkinu okkar? Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis og kennslustjóri diplómanáms í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ

  • Breyttar áherslur nýrra kynslóða á vinnumarkaði. Ísabella Ósk Másdóttir, samskiptastjóri Festu - miðstöðvar um sjálfbærni

  • Heilsumst alla daga!“ - Lýðheilsa jafnt að innan sem utan Krónunnar. Fanney Bjarnadóttir, verkefnastjóri lýðheilsu hjá Krónunni

  • Getur hamingjan verið sjálfbær? Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu

14:10 - Kaffihlé

  • Valdefling ungs fólks fyrir bjartari framtíð: Að stuðla að hamingju, jafnrétti kynjanna og sjálfbærri þróun . Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi ásamt hugleiðingum frá Thelmu Lind Árnadóttur og Sóleyju Guðjónsdóttur úr barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

  • „Frá vanvirkni til þátttöku“ - Þverfaglegt þróunarverkefni hjá Sveitarfélaginu Árborg. Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson, deildarstjóri frístundaþjónustu Árborgar

  • "Gott að sjá þig!" - Upptekið ávarp. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

  • Hamingjudans. Margrét Leifsdóttir, arkitekt og heilsumarkþjálfi

  • Pallborðsumræður

16:00 - Málþingslok

Fundarstjóri er Gunnar Hrafn Kristjánsson og pallborðsumræðum stjórnar Elín Hirst