Fara beint í efnið

Hreyfi- og stoðkerfi

Almennt um starfstengda stoðkerfisverki

Starfsfólk getur fundið fyrir ýmsum álagseinkennum frá hreyfi- og stoðkerfi líkamans vegna vinnu sinnar en stoðkerfisvandi er ein algengasta orsök fjarvista frá vinnu og ein af ástæðum örorku. Atvinnurekendur og starfsfólk geta í sameiningu reynt að koma í veg fyrir að vinnuaðstæður leiði til álagseinkenna og er gott að horfa til umhverfisþátta, búnaðar og líkamsbeitingar í því sambandi.

Þættir sem draga úr líkum á álagseinkennum frá hreyfi- og stoðkerfi:

  • Góð vinnuaðstaða

  • Fjölbreytt verkefni

  • Hentug líkamsbeiting

  • Regluleg hreyfing

Regluleg fræðsla til starfsfólks um notkun léttitækja og hentuga líkamsbeitingu við hin ýmsu störf getur einnig skilað miklu.

Huga þarf sérstaklega vel að nýju starfsfólki og starfsfólki sem ekki hefur íslensku sem móðurmál.

Þættir sem geta stuðlað að starfstengdum stoðkerfisverkjum og eru gjarnan samverkandi

  • Störf sem fela í sér að lyfta og bera, vinna í miklum hraða og að vinna í óþægilegum líkamsstöðum.

  • Endurteknar athafnir.

  • Ýmsir umhverfisþættir.

  • Einstaklingsbundnir þættir eins og svefn, streita, kyn og aldur.

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439