Fara beint í efnið

Embætti landlæknis gefur út sérstaka landsútgáfu afleidda af NCSP+ vörpunarskránni og kallast hún NCSP-IS. Í NCSP-IS eru allir gildir kóðar NCSP+ frá 2007 en hinum séríslensku V-kóðum úr NCSP sleppt. Þar sem um vörpunarskrá er að ræða en ekki flokkunarkerfi, þá fylgja NCSP-IS kóðum ekki skýringartextar. Mælt er með notkun á NCSP-IS við skráningu aðgerða í heilbrigðisþjónustunni, sérstaklega hvað varðar DRG fjármögnun á Íslandi. Skráning með NCSP-IS er mun ítarlegri í dag en skráning NCSP flokkunarkerfisins, þar sem NCSP hefur síðastliðin ár þróast í áttina að sérstökum landskóðum hvers lands fyrir sig sem síðan er varpað í sérstaka NCSP+ skrá.

Á vegum Norrænnar miðstöðvar um kostnaðargreiningu, Nordic Casemix Centre eru kóðar úr landsútgáfum NCSP fyrir Norðurlöndin öllum varpað árlega í skrá sem nefnist NCSP+ (auðkennd hverju ári fyrir sig). Hún er nýtt til samræmingar við kostnaðargreiningu heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndum.

Kóðar NCSP+ (og NCSP-IS) byggja á grunnskipulagi NCSP flokkunarkerfisins með þremur bókstöfum og tveimur tölustöfum, en við bætist einn aukastafur í þriðja sæti og gefur hann til kynna um hvers konar inngrip er að ræða. 

Þriðji stafurinn í NCSP+ gefur til kynna eitt af eftirtöldu:

  • A - svæfingu (anesthesia)

  • D - geislagreiningu (diagnostic radiology)

  • E - holspeglun (endoscopy)

  • F - lífeðlisfræðilegt próf (physiological examination)

  • O - krabbameinsmeðferð (oncology)

  • R - endurhæfingu (rehabilitation)

  • S - skurðaðgerð (surgery)

  • X - annað inngrip (other procedure)

  • Z - sérstakar kringumstæður (special circumstances).

© Nordic Medico-Statistical Committee (NOMESCO) á höfundarrétt á NCSP+ útgáfunni. Örn Bjarnason á höfundarrétt á íslenskum þýðingum sem notaðar eru úr NCSP.

NCSP-IS (NCSP+) skrár

Gagnagrunnsútgáfa fyrir heilbrigðisstofnanir





Þjónustuaðili

Embætti land­læknis