Skoðun ökutækja
Öll ökutæki sem bera skráningarmerki með skoðunarmiða þarf að skoða reglulega á skoðunarstöð.
Ábyrgð á að fara með ökutæki til skoðunar liggur:
hjá skráðum umráðamanni, ef ökutæki hefur hann
annars ber eigandi þá ábyrgð.
Skoðunartími
Límmiði á númeraplötu ökutækis (skoðunarmiði) gefur til kynna næsta skoðunarár. Næsta skoðunarár fer meðal annars eftir aldri ökutækisins. Sem dæmi:
Venjulegir fólksbílar, sendibílar og bifhjól: Fyrsta skoðun eftir fjögur ár, svo á tveggja ára fresti í tvö skipti og loks árlega eftir það.
Stærri ökutæki, til dæmis hópbílar, vörubílar og eftirvagnar þeirra: Árleg skoðun
Fornökutæki og ferðavagnar: Skoðun á tveggja ára fresti
Síðasti tölustafur í númeraplötu ökutækis gefur til kynna skoðunarmánuð:
1 er janúar
2 er febrúar
0 er október
bókstafur er maí
Fornökutæki, húsbifreiðir, ferðavagna (tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi) og öll bifhjól á að skoða í:
maí.
Þú getur farið með ökutækið í skoðun:
6 mánuðum fyrir skoðunarmánuð og allt að 2 mánuðum eftir skoðunarmánuð.
hvenær sem er, fyrir skoðunarmánuð (innan almanaksárs) ef ökutækið fékk fullnaðarskoðun fyrir 1.nóvember árið áður.
Eftir það þarftu að greiða vanrækslugjald.
Sérstakur frestur til skoðunar
Ekki hægt að fá frest til að færa ökutæki til skoðunar, nema ef eigandi ökutækis:
býr fjær en 80 kílómetra frá næstu skoðunarstofu og hafi ekki átt þess kost að færa ökutækið til skoðunar innan frests
þá getur eigandi fengið viðbótarfrest í 2 mánuði með því að fylla út beiðni um frestun. Beiðnin þarf að hafa borist áður en frestur til að skoða ökutækið rennur út.
Hætt við skoðun sem er byrjuð
Hægt er að hætta við byrjaða skoðun. Skoðunarstofa tilkynnir það til Samgöngustofu sem kannar ástæður þess að hætt var við skoðun og grípur mögulega til ráðstafana.
Niðurstaða skoðunar
Að lokinni skoðun færðu skoðunarvottorð. Þar kemur fram niðurstaða stoðunar sem getur verið:
án athugasemda
lagfæring
endurskoðun
akstursbann
Frestur til endurskoðunar
Séu gerðar athugasemdir við skoðun er veittur frestur til að:
lagfæra það sem gert var athugasemdir við
fara með ökutækið í endurskoðun, til dæmis á endurskoðunarverkstæði
Frestur er alltaf veittur til loka næsta mánaðar.
Áríðandi er að haga notkun ökutækis í samræmi við niðurstöðu skoðunar þar til fullnaðarviðgerð hefur farið fram.
Framlenging frests til endurskoðunar
Áður en útgefinn frestur til endurskoðunar rennur út þá hefur skoðunarstofa heimild til að framlengja frestinn um 30 daga ef
ekki er unnt að útvega varahluti til viðgerða á ökutæki eða
ekki er hægt að fá tíma fyrir ökutæki á verkstæði til viðgerðar.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa