Kynsjúkdómar

 Smellið á myndina til að skoða bæklinginn.
Sjúkdómar sem smita við samfarir nefnast kynsjúkdómar. Sameiginlegt kynsjúkdómum er að smitið berst  við beina snertingu slímhúða í kynfærum, endaþarmi og hálsi. Mögulegt er að hafa fleiri en einn kynsjúkdóm samtímis og af sumum þeirra er hægt að smitast oftar en einu sinni.

Kynsjúkdómar valda oft litlum sem engum einkennum. Því er hægt að ganga með þá lengi og smita aðra án þess að vita af því. Algengustu sjúkdómseinkenni eru útferð, kláði og sviði við þvaglát. Sumir kynsjúkdómar valda sárum og vörtum á kynfærum.

Sumir kynsjúkdómar geta valdið varanlegum skaða ef rétt meðferð er ekki gefin fljótlega eftir smit. Ekki er til læknandi meðferð við öllum kynsjúkdómum, alnæmi er ólæknandi sjúkdómur sem kostar ævilanga meðferð á dýrum lyfjum sem geta valdið bagalegum aukaverkunum.

Notkun smokks er góð getnaðarvörn og getur einnig komið í veg fyrir kynsjúkdóma, sé smokkurinn notaður allan tímann meðan á samförum stendur. Skyndikynni eru sérlega varasöm og best er að forðast þau, nota smokk á réttan hátt eða gera kröfu um að rekkjunauturinn geri það. Því færri rekkjunautar, þeim mun minni líkur á smiti!

Allt heilbrigðisstarfsfólk er bundið þagnarskyldu. Þeir sem vinna við meðferð og varnir gegn kynsjúkdómum hlíta þessu út í ystu æsar.

Yfirlit yfir einkenni helstu kynsjúkdóma hjá konum og körlum

Eftirfarandi upplýsingar eru teknar úr bæklingnum Kynsjúkdómar sem kom út í 2. prentun í desember 2010.

Læknum ber skv. sóttvarnalögum skylda til að tilkynna sóttvarnalækni tilfelli ofangreindra smitsjúkdóma með persónuauðkennum hins smitaða. Tilgangur slíkra tilkynninga  er að hindra útbreiðslu smits. Sjá meira undir Tilkynningaskyldir sjúkdómar.

Sjá einnig: 

Kynsjúkdómar – Smitleiðir, einkenni, meðferð, forvarnir (PDF, 471 KB)
Ritstjórn: Sigurlaug Hauksdóttir. Útlit og myndir: Auglýsingastofa Þórhildar.
Sóttvarnalæknir. 2. prentun, desember 2010.
(Ath. Upplýsingar um greiningarstaði fyrir kynsjúkdómapróf eru breyttar frá 1. útg. 2009.)




Staðreyndir um HIV og alnæmi (PDF). Bæklingur gefinn út í september 2003.
Ath. breyttar upplýsingar í bæklingi varðandi greiningarstaði fyrir kynsjúkdómapróf (sept. 2010)

Facts about HIV/AIDS. 
Bæklingurinn var gefinn út á fimm erlendum tungumálum. Hægt er að skoða bæklinginn með því að smella á fána viðkomandi lands hér fyrir neðan.

 Íslenska  English  Polish  Russian  Serbian  Thai

 

Frekari upplýsingar
Á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins starfar yfirfélagsráðgjafi, Sigurlaug Hauksdóttir, sem sinnir m.a. forvörnum gegn kynsjúkdómum og útbreiðslu HIV/alnæmis og veitir ráðgjöf. Geta stofnanir, skólar, fyrirtæki, félög og aðrir staðir óskað eftir fyrirlestri eða fræðslu um þessi efni með því að hafa beint samband við hana með tölvupósti eða í síma. Einnig er hægt að beina til hennar spurningum um HIV/alnæmi, kynsjúkdóma og smokka.

Netfang: sigurlaug@landlaeknir.is, sími: 510 1900/ 510 1941.

 

Síðast breytt/uppfært 17. janúar 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli