Fara beint í efnið

Áhættumat á vinnustöðum

Gerð áhættumats

  • Markmið áhættumats er greina áhættuþætti í vinnuumhverfinu svo unnt sé að bregðast við þeim til að koma í veg fyrir slys, óhöpp, meiðsl, álag, vanlíðan eða annað það sem getur ógnað öryggi, heilsu og vellíðan starfsfólks. 

  • Við matið er mikilvægt að greina áhættuþættina með því að fara kerfisbundið yfir hvort eitthvað í vinnuumhverfinu, vinnuskipulaginu eða við framkvæmd vinnunnar geti hugsanlega ógnað öryggi, heilsu og vellíðan starfsfólks. 

  • Tilgangurinn er að tryggja að starfsfólk starfi við eins litla áhættu og hægt er.

Góð regla er að sé hægt að koma alveg í veg fyrir áhættuna, svo sem með  því að gera tæknilegar úrbætur eða tryggja notkun hlífa eða annarra öryggisráðstafana á vélar, ætti það ávallt að vera fyrsti kosturinn. Eins er mikilvægt að huga að þjálfun og leiðsögn til starfsfólks varðandi öryggisreglur. 

Mælt er að með að hafa samráð við starfsfólkið því það þekkir vel störf sín og getur komið með góðar hugmyndir til að draga úr áhrifum hættunnar. Jafnframt er mikilvægt að virkja það starfsfólk sem hefur verið falið hlutverk í vinnuverndarstarfi vinnustaðarins, svo sem öryggisverði, öryggistrúnaðarmenn og öryggisnefndir. 

Aðferðin sem valin er við áhættumatið þarf að hæfa bæði störfum vinnustaðarins og stærð hans. Enn fremur þarf atvinnurekandi að sjá til þess að þeir sem annast matið hafi til þess nægilega þekkingu. Skilgreina þarf hvernig best sé að fara reglulega yfir alla þætti þannig að tryggt sé að gripið sé til nauðsynlegra úrbóta á öllum sviðum. Eins þarf að innleiða aðferðir til að meta árangur. 

Undirbúningur

Mælt er með að gerð áhættumats sé samstarfsverkefni atvinnurekenda, stjórnenda og starfsfólks á vinnustaðnum. Hópurinn sem valinn er til að vinna áhættumatið þarf að afla sér ýmissa upplýsinga áður en hafist er handa og meðan á verkinu stendur. 

Framkvæmd

Fara þarf skipulega yfir öll störf innan vinnustaðarins og meta áhættuþætti í hverju starfi. Taka skal mið af eðli starfseminnar, samsetningu starfsmannahópsins, stærð og skipulagi vinnustaðarins. Sérstaklega skal skoða störf þar sem fyrirsjáanlegt er að heilsa og öryggi starfsfólks sé meiri hætta búin en annars starfsfólks. 

Mikilvægt er að gefa sér ekki fyrirfram hvers konar áhættuþættir séu til staðar. Sumir áhættuþættir eru augljósir á meðan erfiðara getur verið að koma auga á aðra. Getur það til dæmis átt við um sálfélagslega áhættuþætti og þætti sem valda álagi á stoðkerfi starfsfólks. 

Meginþættir vinnuverndar

Til að tryggja heildstætt áhættumat ber að horfa á starfsemina og vinnuumhverfið í heild og þá er gott að styðjast við fimm meginþætti vinnuverndar, og sértæka þætti ef við á. Meta þarf bæði skammtíma- og langtímaáhrif hvers áhættuþáttar.

Við gerð áhættumats getur verið gott að spyrja sig spurninga eins og: 

  • Hvernig notar starfsfólk verkfæri?  

  • Eru vinnuaðferðir óskipulagðar eða hættulegar? 

  • Eru gönguleiðir alltaf greiðfærar og vel merktar? 

  • Er skráning slysa og veikindafjarvista nýtt til að koma auga á minna augljósa áhættuþætti? 

  • Eru viðhorf og skoðanir á vinnustaðnum sem fara ekki saman við stefnu hans og sett viðmið, svo sem hvernig starfsfólk talar um eða við hvert annað? 

  • Þarf að taka tillit til þungaðra foreldra, ungs fólks eða fólks með ólíka starfsgetu? 

Við greiningu á áhættuþáttum má styðjast við ýmiss hjálpargögn. Þegar gerð áhættumatsins krefst færni sem atvinnurekandi eða starfsfólk hans hefur ekki yfir að ráða skal leita til viðurkennds þjónustuaðila.


Næst: Niðurstaða og næstu skref

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439