Fara beint í efnið

Að kaupa inn fyrir opinbera aðila

1. Greining

Opinber innkaup hefjast á greiningu sem er svo send með verkbeiðni til Ríkiskaupa. Tímalengd greiningar tekur mið af því hversu ítarlegar upplýsingar liggja fyrir.

Á hvernig formi eru greiningar og áætlanir gerðar? Yfirleitt eru þessi skjöl sett upp í ritvinnsluforritum eins og til dæmis Word. Þegar verkbeiðnin er send inn eru þau látin fylgja með á pdf-formi.

Greiningin skiptist í innkaupagreiningu og gerð áætlana.

Verkbeiðni send

Ríkiskaup þurfa að fá formlega verkbeiðni svo að hægt sé að hefja samstarf um undirbúning fyrir innkaupaferlið. Í beiðninni er beðið um grunnupplýsingar um verkefnið. Innheimt er fyrir þjónustu sérfræðinga Ríkiskaupa eftir gjaldskrá.

Senda verkbeiðni til Ríkiskaupa

Á að kaupa nýsköpun?

Til að greiða leið nýsköpunarfyrirtækja að innkaupunum má leggja áherslu á að skilgreina þörfina eða vandamálið sem á að leysa. Þetta er sett í forgrunn frekar en kröfur um hvernig lausnin eigi að vera. Það má líka athuga að hafa tækniforskriftir í tæknilýsingu ekki of ítarlegar.

Tékklisti kaupanda

  • Tryggja að fjárveiting sé til staðar.

  • Ef við á, taka saman kostnað við núverandi samning.

  • Tilnefna starfsmenn innan raða kaupanda til að leiða verkefnið.

  • Kanna þörf á tæknilegum ráðgjafa. 

  • Senda inn fyrirspurn til Ríkiskaupa ef þörf er á aðstoð við greiningarvinnu.

  • Gera innkaupagreiningu þar sem þarfagreining og tæknilýsing er mótuð. 

  • Gera áætlanir um virði samnings í formi kostnaðar- og tímaáætlunar.

  • Athuga hvort að upphæð sé yfir viðmiðunarmörkum, hvort þörf sé á útboði eða hvort miðlægur samningur sé í gildi fyrir vöru, þjónustu eða framkvæmd sem á að kaupa.

  • Senda inn verkbeiðni til Ríkiskaupa til að koma ferlinu af stað.


Næsta skref: Undirbúningur útboðsgagna

Þjónustuaðili

Ríkis­kaup

Ríkiskaup

Hafðu samband

Sími: 530 1400

Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is

Afgreiðslu­tími

Alla virka daga frá klukkan 9 til 15.

Heim­il­is­fang

Borgartúni 26, 7. hæð,
105 Reykjavík

Kennitala: 660169-4749