Notkun nikotíns í nútímasamfélagi - Morgunverðarfundur
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
Notkun nikotíns í nútímasamfélagi er yfirskrift næsta morgunverðarfundar Náum áttum sem verður haldinn á netinu, miðvikudaginn 10. febrúar 2020 kl. 08:15-10:00.
Fjallað verður um nikótín, rafsígarettur, tóbak og löggjöfina varðandi það.
Embætti landlæknis, Rannsókn og greining ásamt Neytendastofu verða m.a. með erindi á fundinum.
Upplýsingar og skráning á vef Náum áttum
Fundarstjóri er Rafn M. Jónsson verkefnisstjóri hjá embætti landlæknis.
Náum áttum er samstarfshópur um fræðslu- og forvarnarmál. Hópinn mynda fulltrúar nokkurra stofnana og félagasamtaka sem vinna að forvörnum, velferð, vernd og mannréttindum barna.
Þeir eru; Embætti landlæknis, Félag fagfólks í frítímaþjónustu FFF, Barnaverndarstofa, FRÆ Fræðsla og forvarnir, Reykjavíkurborg, Vímulaus æska / Foreldrahús, IOGT á Íslandi, Heimili og skóli, Þjóðkirkjan, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Barnaheill - Save the Children á Íslandi, Samband íslenskra sveitarfélaga og Umboðsmaður barna
Staðsetning: Á netinu.
Tímasetning: Miðvikudaginn 10. febrúar 2020 kl. 08:15-10:00