Líðan starfsfólks og leiðir til velsældar
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
Embætti landlæknis, VIRK og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði í streymi fimmtudaginn 25. febrúar kl. 8.15-10:00.
Upptakan af fundinum verður aðgengileg að honum loknum. Tengil á streymið má finna hér.
Sjá viðburðinn á Facebook hér.
Umfjöllunarefni fundarins er líðan starfsfólks á vinnumarkaði og leiðir til að efla velsæld á tímum Covid, hvað vinnustaðir geti gert til að bæta líðan starfsfólks.
Dagskrá
Líðan fullorðinna Íslendinga 2020 - var hún öðruvísi en árin á undan? Hvað getum við gert til að bæta hana frekar?
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri hjá embætti landlæknis
Orðin í verki – öflug framlína í fyrirrúmi. Vegferðin að velferðarþjónustu Samkaupa
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Samkaupum
Vellíðan í leik og starfi
Hildur Atladóttir, leiðtogi heilbrigðismála hjá Ísal.
Gunnhildur Gísladóttir verkefnisstjóri hjá Vinnueftirlitinu stjórnar fundinum.
Morgunfundurinn er sá sjöundi í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og hluti af samstarfi embættis landlæknis, VIRK og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.
Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.
Sjá nánar um heilsueflandi vinnustaði.
Staðsetning: Streymi á netinu. Sjá í kynningartexta.
Tímasetning: Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 8.15-10:00.