Hamingja á vinnustöðum er alvörumál!
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
VIRK, Embætti landlæknis og Vinnueftirlitið standa fyrir morgunfundi á Grand Hótel 21. febrúar um mikilvægi þess að auka vellíðan á vinnustöðum.
Aðalfyrirlesari á morgunfundinum er Vanessa King, þekktur fyrirlesari og sérfræðingur um vellíðan, þrautseigju og hamingju á vinnustöðum, en Vanessa er stödd hér á landi til að kenna í Jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Auk Vanessu ávarpar Alma D. Möller landlæknir morgunfundinn, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir reifar rannsóknir sínar á hamingju vinnandi fólks á Íslandi og Ingibjörg Loftsdóttir kynnir Velvirk verkefnið.
Dagskrá
Ávarp | Alma D. Möller, landlæknir |
The serious business of happiness at work | Vanessa King, Action for Happiness |
Hamingja vinnandi fólks á Íslandi | Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis |
Er brjálað að gera? | Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri hjá VIRK |
Fundarstjóri: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands
Morgunfundurinn verður haldinn á Grand Hótel 21. febrúar kl. 8.30 -10.00.
Aðgangur er ókeypis en skrá skal þátttöku á virk.is.
Um jákvæða sálfræði (positive psychology)
Jákvæð sálfræði (positive psychology) er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum hliðum mannsins eins og styrkleikum, vellíðan og hamingju og finna leiðir til að efla líðan enn frekar. Markmið diplómanáms í jákvæðri sálfræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands er að kynna hugmyndafræði og nálgun jákvæðrar sálfræði þannig að nemendur geti nýtt sér hana bæði í einkalífi og starfi.
Námið byggir á samþættingu rannsókna, reynslu og sannreyndum inngripum til að auka vellíðan. Námið er þverfaglegt og getur nýst öllum þeim sem vinna með mannlega hegðun, þeim sem vilja hafa áhrif á fólk og umhverfi og þeim sem vilja taka áskorun um frekari þroska og leggja sig fram um að njóta lífsins til hins ítrasta.
Staðsetning: Grand hótel
Tímasetning: 21. febrúar kl. 8.30 -10.00
Kort: Sjá staðsetninguOpen new window
Tengill: Sjá nánari upplýsingarOpen new window