Heilsueflandi samfélag – Vinnustofa fyrir sveitarfélög á Vestfjörðum 9. maí 2017
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
Vinnustofa Heilsueflandi samfélags fyrir sveitarfélög á Vestfjörðum verður haldin þann 9. maí 2017 kl. 12.00 – 16.30 á Ísafirði, nánari staðsetning kemur fljótlega.
Heilsueflandi samfélag er samfélag sem leggur áherslu á að heilsa og líðan allra íbúa sé í fyrirrúmi í allri stefnumótun og á öllum sviðum.
Embætti landlæknis býður upp á vinnustofur um þessa nálgun í samstarfi við Rannsókn og greiningu og Ísafjarðarbæ. Sveitarfélögum á Vestfjörðum er boðið að taka þátt. Vinnustofunum er ætlað að styðja sveitarfélög í að vinna markvisst heilsueflingarstarf í samfélaginu.
Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu. Veitingar í boði.
Skráningarfrestur er til og með 4. maí 2017.
Vinnustofan er haldin með stuðningi Evrópuverkefnsisins JA CHRODIS.
Nánari upplýsingar, sjá www.chrodis.eu
Staðsetning: Á Ísafirði, nánari staðsetning kemur fljótlega.
Tímasetning: 12:00 – 16:30
Tengill: Sjá nánari upplýsingarOpen new window