Heilsueflandi samfélag – Vinnustofa fyrir sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu 26. apríl 2017
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
Vinnustofa Heilsueflandi samfélags fyrir sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavog, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes) verður haldin þann 26. apríl 2017 kl. 9.00–16.00 í sal Safnaðarheimilisins Borgir í Kópavogi.
Heilsueflandi samfélag er samfélag sem leggur áherslu á að heilsa og líðan allra íbúa sé í fyrirrúmi í allri stefnumótun og á öllum sviðum.
Embætti landlæknis býður upp á vinnustofu um þessa nálgun í samstarfi við Kópavog. Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi er boðið að taka þátt. Vinnustofunni er ætlað að styðja sveitarfélög í að vinna markvisst heilsueflingarstarf í samfélaginu.
Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu. Léttur hádegismatur í boði.
Skráningarfrestur er til og með 21. apríl 2017
Vinnustofan er haldin með stuðningi Evrópuverkefnsisins JA CHRODIS.
Nánari upplýsingar, sjá www.chrodis.eu
Staðsetning: Safnaðarheimilið Borgir, Hábraut 1a, 200 Kópavogur
Tímasetning: 9:00 – 16:00
Tengill: Sjá nánari upplýsingarOpen new window
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.