Heilsueflandi samfélag – Vinnustofa fyrir sveitarfélög á Suðurlandi 11. nóv. 2016
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
Vinnustofa Heilsueflandi samfélags fyrir sveitarfélög á Suðurlandi verður haldin þann 11. nóvember 2016 kl. 12.00 – 16.30 í sal Fjölbrautarskóla Suðurlands.
Heilsueflandi samfélag er samfélag sem leggur áherslu á að heilsa og líðan allra íbúa sé í fyrirrúmi í allri stefnumótun og á öllum sviðum.
Embætti landlæknis býður upp á vinnustofur um þessa nálgun í samstarfi við Árborg. Sveitarfélögum á Suðurlandi er boðið að taka þátt. Vinnustofunum er ætlað að styðja sveitarfélög í að vinna markvisst heilsueflingarstarf í samfélaginu.
Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu. Léttur hádegismatur í boði.
Skráningarfrestur er til og með 9. nóvember 2016.
Vinnustofan er haldin með stuðningi Evrópuverkefnsisins JA CHRODIS.
Nánari upplýsingar, sjá www.chrodis.eu
Staðsetning: Fjölbrautarskóli Suðurlands, Tryggvagötu 25, 800 Selfoss
Tímasetning: 11. nóvember 2016, kl. 12:00 – 16:30
Tengill: Sjá nánari upplýsingarOpen new window
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.