Heilsueflandi samfélag – Vinnustofa fyrir sveitarfélög á Norðurlandi 31. okt. 2016
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
Vinnustofa Heilsueflandi samfélags fyrir sveitarfélög á Norðurlandi verður haldin þann 31. október 2016 kl. 10.00 – 14.30 í Skipagötu 14 (4. hæð), 600 Akureyri.
Heilsueflandi samfélag er samfélag sem leggur áherslu á að heilsa og líðan allra íbúa sé í fyrirrúmi í allri stefnumótun og á öllum sviðum.
Embætti landlæknis býður upp á vinnustofur um þessa nálgun í samstarfi við Akureyrarbæ. Sveitarfélögum á Norðurlandi er boðið að taka þátt. Vinnustofunum er ætlað að styðja sveitarfélög í að vinna markvisst heilsueflingarstarf í samfélaginu.
Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu. Léttur hádegismatur í boði.
Skráningarfrestur er til og með 27. október 2016.
Vinnustofan er haldin með stuðningi Evrópuverkefnsisins JA CHRODIS.
Nánari upplýsingar, sjá www.chrodis.eu.
Staðsetning: Skipagötu 14 (4. hæð), 600 Akureyri
Tímasetning: 31. október 2016, kl. 10:00 – 14:30
Tengill: Sjá nánari upplýsingarOpen new window
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.