Zippy kennaranámskeið 20. október 2015
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
Námskeið fyrir leik- og grunnskólakennara í kennslu námsefnisins Vinir Zippýs verður haldið þriðjudaginn 20 október kl. 12:30 – 17:30 í Vesturgarði, þjónustumiðstöð Vesturbæjar á Hjarðarhaga 45-47 í Reykjavík.
Vinir Zippýs er námsefni sem er ætlað börnum á aldrinum 5–7 ára. Efnið miðar að því að efla félagsfærni ungra barna og getu þeirra til að skilja og tjá eigin tilfinningar, finna heppilegar lausnir á vanda og takast á við mótlæti.
Námsefnið er byggt upp af 6 námsþáttum sem hver inniheldur 4 kennslustundir. Kennslustundunum er lýst með nákvæmum hætti í vönduðum kennslugögnum sem fylgja námskeiði.
Námskeið og námskeiðsgögn eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skráningarfrestur er til 15. október.
Staðsetning: Vesturgarður, þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Hjarðarhaga 45-47, 107 Reykjavík
Tímasetning: 20. október 2015, kl. 12:30–17:30
Tengill: Sjá nánari upplýsingarOpen new window
Vinsamlegast athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.