ICF-málþing
Athugið að þessi viðburður er liðinn.
Í tilefni af útgáfu ICF-flokkunarkerfisins á íslensku og komu Dr. Jerome Bickenbach, sérfræðings á sviði ICF til Íslands, standa Embætti landlæknis, Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri fyrir málþingi um ICF-flokkunarkerfið. Málþingið verður haldið föstudaginn 25. apríl kl. 13:00-16:45 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá þátttöku, í síðasta lagi 22. apríl.
Nánar um ICF-flokkunarkerfið (á ensku)
Fyrirspurnir sendist á póstfangið icf@landlaeknir.is
Staðsetning: Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
Tímasetning: 25. apríl 2014, kl. 13:00-16:40
Tengill: Sjá nánari upplýsingarOpen new window