12.10.22
Umsóknir í Lýðheilsusjóð 2023
Áherslur við styrkveitingu fyrir árið 2023 verða eftirfarandi:
- Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu
- Aðgerðir sem miða að því að efla félagsfærni
- Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu
- Áfengis, vímu- og tóbaksvarnir
- Verkefni sem tengjast kynheilbrigði
- Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu
Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum:
- Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi
- Þingsályktun um lýðheilsustefnu til ársins 2030
- Stefna í áfengis- og vímuvörnum til 2020
- Stefna í geðheilbrigðismálum til 2030
- Stjórnarsáttmála um bætta lýðheilsu, aukna velsæld og jafnt aðgengi.
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
- Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu
- Verkefni með eigin fjármögnun og/eða annað mótframlag
- Verkefni sem ekki eru unnin eingöngu af stofnunum á föstum fjárlögum
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið.
Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2022.
Sótt er um á nýju vefsvæði Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.