01.09.22
Áfram tafir á afgreiðslu mála hjá embætti landlæknis
Vegna margra fyrirspurna um stöðu mála, sem eru til afgreiðslu hjá embætti landlæknis, vill embættið koma því á framfæri að vegna mikilla anna er fyrirsjáanlegt að tafir verði áfram á afgreiðslu erinda í mörgum málaflokkum hjá embættinu.
Öll mál sem berast embætti landlæknis eru sett í viðeigandi farveg. Öll mál eru afgreidd eins hratt og mögulegt er og þeim forgangsraðað eftir tilefni og getu hverju sinni.
- Mikið álag er hjá embættinu við útgáfu starfsleyfa og sérfræðileyfa. Embættið bendir á að allar umsóknir eru afgreiddar eins hratt og mögulegt er. Athygli er vakin á því á að ekki er unnt að verða við óskum um flýtimeðferð einstakra mála. Sjá nánar um málsmeðferðarhraða í tengslum við útgáfu starfsleyfa á heimasíðu embættis landlæknis.
- Kvartanir vegna heilbrigðisþjónustu, sjá Upplýsingar um kvörtun einstaklinga eða aðstandanda til embættis landlæknis og Fjöldi kvartana í heilbrigðisþjónustu.