18.11.21
Greinargerð um bið eftir völdum skurðaðgerðum birt á vef
Embætti landlæknis hefur birt samantekt um bið eftir völdum skurðaðgerðum.
Ítarlegar tölulegar upplýsingar um stöðu á biðlistum má nálgast í töflu (.xlsx).
Ljóst er að of margir bíða umfram viðmið embættisins um ásættanlegan biðtíma í flestum aðgerðarflokkum og hlutfall þeirra sem beðið hafa lengur en þrjá mánuði hefur heilt yfir hækkað.
Fyrirspurnum vegna greinargerðarinnar skal beina til
Kjartans Hreins Njálssonar
aðstoðarmanns landlæknis
Netfang: kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is
Sími: 510-1900