18.02.21
Krafa um neikvæð PCR-próf fyrir COVID-19 við komu til Íslands
Allir sem koma til Íslands eftir meira en sólarhringsdvöl á skilgreindu áhættusvæði þurfa að sýna vottorð um neikvætt PCR-próf gegn SARSCoV-2/COVID-19 áður en þeir stíga um borð í flugvél eða skip á leið til landsins og einnig við komuna skv. reglugerð nr. 161/2021 sem tekur gildi 19. febrúar 2021.
Leiðbeiningar sóttvarnalæknis um vottorð um neikvætt PCR-próf
- Neikvæð niðurstaða á PCR-prófi (RNA) fyrir SARS-CoV-2/COVID-19.
- Vottorði skali framvísa við byrðingu í brottfararlandi og aftur á landamærum við komu.
- Hafa verið tekið innan við 72 klukkustundum fyrir brottför.
- Ef farþegi er að koma með tengiflugi þá telur 72 klst. frá byrðingu fyrsta flugleggjar.
- Þarf að vera á ensku eða einhverju Norðurlandamáli (íslensku, dönsku, norsku, sænsku) þó ekki finnsku.
- Vottorð á öðru tungumáli má taka gilt ef þýðing stimpluð af löggildum skjalaþýðanda fylgir á einu af tungumálunum sem krafist er.
- Fornafn og eftirnafn og fæðingardagur þess sem sýni var tekið frá (sambærilegt við ferðaskilríki).
- Dagsetning sýnatöku.
- Heiti og símanúmer rannsóknarstofu.
- Niðurstöðu rannsóknar skal forskrá rafrænt ásamt öðrum upplýsingum fyrir brottför.
- Hraðgreiningarpróf (mótefnavakapróf/e. antigen) eru ekki tekin gild.
Undanþegnir því að framvísa neikvæðu PCR-prófi eru:
- Þeir sem hafa vottorð um afstaðna COVID-19 sýkingu (jákvætt PCR-próf sem er eldra en 14 daga gamalt eða mæld mótefni (IgG)).
- Þeir sem hafa gilt bólusetningarvottorð vegna COVID-19.
- Börn fædd 2005 og síðar.
- Þeir sem hafa dvalið skemur en sólarhring erlendis á skilgreindu áhættusvæði.
- Áhafnir og ákveðnar stéttir á vinnuferðum erlendis, enda hafi þær undanþágubréf frá sóttvarnalækni.
Til athugunar
- Einstaklingum sem ekki geta framvísað vottorði við komu til landsins verður annað hvort snúið til baka eða þeim gert að greiða sekt.
- Íslenskum ríkisborgurum og þeir sem eru með dvalarleyfi á Íslandi verður þó ekki meinað að koma til landsins.
Sóttvarnalæknir