Suðurnesjabær gerist Heilsueflandi samfélag
Suðurnesjabær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 14. janúar sl. þegar Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í hátíðarsal Gerðaskóla. Athöfnin var haldin í tengslum við útnefningu íþróttamanns Suðurnesjabæjar. Viðstaddir voru m.a. bæjarfulltrúar, fremsta íþróttafólk bæjarins, ungt tónlistarfólk sem spilaði og söng fyrir gesti og fjölmargir aðrir íbúar á öllum aldri. Í ágúst síðastliðnum var undirrituð viljayfirlýsing um HSAM á Suðurnesjum, sú fyrsta sinna tegundar.
Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig m.a. að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Suðurnesjabær er 30. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 92% landsmanna í slíku samfélagi.
Nánar um Heilsueflandi samfélag
Nánar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Gígja Gunnarsdóttir
verkefnastjóri Heilsueflandi samfélags