31.08.18
Fjallað um tannheilsu landsmanna í nýjum Talnabrunni
Talnabrunnur Embættis landlæknis fjallar að þessu sinni um tannheilsu landsmanna. Þar kemur m.a. fram að 73% landsmanna, 18 ára og eldri, fara að minnsta kosti einu sinni á ári til tannlæknis. Hins vegar mætti einungis um helmingur 67 ára og eldri (54%) til tannlæknis árið 2017.
Þann 1. september 2018 tekur rammasamningur um tannlækningar fyrir eldra fólk gildi en hann tryggir að lágmarki 50% greiðsluþátttöku vegna tannlæknaþjónustu sem fellur undir tryggingar.
Höfundar efnis eru Hólmfríður Guðmundsdóttir og Jón Óskar Guðlaugsson.
Ritstjóri Talnabrunns er Hildur Björk Sigbjörnsdóttir.
Lesa nánar: Talnabrunnur. 12. árgangur. 7. tölublað. Ágúst 2018.