Fara beint í efnið

Leikskólar

„Í leikskólum skal velferð og hagur barna hafður að leiðarljósi í öllu starfi.“

Fyrsta skólastigið

Leikskólinn er fyrsta skólastigið og er hann ætlaður börnum undir skólaskyldualdri, það er undir sex ára aldri. Hann er ætlaður öllum börnum, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, menningu eða trú.

Foreldrar bera frumábyrgð á uppeldi barna sinna en leikskólauppeldið er viðbót.

Umsókn

Foreldrar sækja um leikskóladvöl fyrir barn sitt í því sveitarfélagi þar sem barnið er skráð með lögheimili. Leikskólarnir eru ýmist reknir af sveitarfélögum, einkareknir eða einkareknir með þjónustusamningi við sveitarfélagið.

  • Í sumum sveitarfélögum er hægt að sækja um við fæðingu barns en hjá flestum sveitarfélögum gilda aldurstakmörk.

  • Sótt er um leikskólavist á vefjum þjónustumiðstöðva, sveitarfélaga og leikskóla.

Í flestum sveitarfélögum þurfa foreldrar að greiða ákveðið gjald fyrir leikskóladvöl barna sinna. Leikskólagjald er innheimt 11 mánuði á ári en gert er ráð fyrir að barn taki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Upplýsingar um gjaldskrá leikskóla er að finna á vefjum sveitarfélaga.

Einstæðir foreldrar og námsmenn fá ákveðinn afslátt af leikskólagjaldi. Þá er einnig veittur systkinaafsláttur. Upplýsingar um afslátt fyrir ákveðna hópa er að finna á vefjum sveitarfélaga.

Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta þjónustumiðstöðva hverfa í Reykjavík sinnir sérfræðiþjónustu við leikskóla í borginni. Í öðrum sveitarfélögum er þjónustan oft hjá fræðslu- eða fjölskyldudeildum. Skólar vísa málum til þjónustunnar með samþykki foreldra, foreldrar geta einnig leitað beint eftir aðstoð.

Leikskólinn skal leggja grunn að íslenskukunnáttu barna sem eiga annað móðurmál en íslensku og kynna þeim íslenskt samfélag.

Biðlistar eru á mörgum leikskólum og geta því foreldrar og barn þeirra þurft að bíða eftir plássi í einhvern tíma. Oftast raðast börn á biðlista eftir aldri, þau elstu fyrst. Oft er plássum úthlutað á tímabilinu mars til júní ár hvert.

Algengast er að börn sæki leikskóla frá 18 mánaða aldri þar til þau hefja nám í grunnskóla. Börn dvelja allt frá fjórum klukkustundum upp í níu og hálfa klukkustund, hvern virkan dag á leikskólum.

Þegar barn byrjar í leikskóla er gerður dvalarsamningur milli skólans og foreldris og er gagnkvæmur uppsagnarfrestur einn mánuður.

Gæsluleikvellir eru starfræktir í flestum stærri sveitarfélögum og er opnunartími misjafn eftir árstíðum. Þeir eru ætlaðir yngri börnum og er aldurstakmark misjafnt. Nánari upplýsingar finnast á vefjum sveitarfélaga.

Sveitarfélögum er heimilt að reka saman leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla undir stjórn eins skólastjóra.

Heimili og skóli, landssamtök foreldra

Réttindi fatlaðra barna

Fötluð börn eiga rétt á leikskóladvöl samkvæmt lögum. Hana á að veita á almennum leikskólum með nauðsynlegri stuðningsþjónustu eða á sérhæfðum deildum.

Öryrkjar fá ákveðinn afslátt af leikskólagjaldi. Nánari upplýsingar um afslátt fyrir ákveðna hópa er að finna á vefjum sveitarfélaga.

Menntun og atvinna fatlaðs fólks og öryrkja á Ísland.is

Til minnis

  • Listar og upplýsingar um dagforeldra eru á vefjum sveitarfélaga.

  • Kynna sér aðstæður og aðbúnað hjá dagforeldri. Gjaldskrá dagforeldra er frjáls.

  • Kynna sér reglur um niðurgreiðslur á daggjöldum á vefjum sveitarfélaga.

  • Upplýsa dagforeldri um venjur barnsins, heilsu og breytingar á högum.

  • Sækja um leikskóladvöl í því sveitarfélagi þar sem barn er skráð með lögheimili.

Kynna sér reglur um leikskóla sem eru misjafnar milli sveitarfélaga, meðal annars:

  • um hvenær má sækja um leikskóladvöl fyrir barn og hvenær búast má við að það fái úthlutað plássi,

  • um gjaldskrá leikskóla, niðurgreiðslur og aðra afslætti,

  • um hvernig tilkynna skal breytingar á högum barns,

  • um hvenær má sækja um leikskóladvöl fyrir barn og hvenær búast má við að það fái úthlutað plássi,

  • um gjaldskrá leikskóla, niðurgreiðslur og aðra afslætti,

  • um hvernig tilkynna skal breytingar á högum barns.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Heim­il­is­fang

Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi
Kennitala: 660124-1280

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@mms.is