Faglegar lágmarkskröfur
Rekstaraðilar í heilbrigðisþjónustu þurfa að uppfylla ákveðnar faglegar lágmarkskröfur til að mega hefja starfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu og skal liggja fyrir staðfesting landlæknis þess efnis áður en starfsemin hefst.
Upplýsingar í tilkynningu um fyrirhugaðan rekstur heilbrigðisþjónustu eru forsendur þess að landlæknir geti metið hvort hægt sé að staðfesta að reksturinn teljist uppfylla faglegar lágmarkskröfur.
Fjallað er um faglegrar lágmarkskröfur til reksturs heilbrigðisþjónustu í IV. kafla reglugerðar um eftirlit landlæknis með rekstri heilbrigðisþjónustu og faglegar lágmarkskröfur, nr. 786/2007.
Samkvæmt reglugerðinni setur landlæknir fram faglegar lágmarkskröfur varðandi húsnæði, aðstöðu, tæki, búnað og mönnun. Einnig ber að fylgja fyrirmælum sem landlækni kann að gefa út með heimild í. 12. gr. IV. kafla reglugerðarinnar.
Sjá spurt og svarað um rekstur heilbrigðisþjónustu.
Faglegar lágmarkskröfur til rekstrar heilbrigðisþjónustu
skv. lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007
Síðast uppfært 08.12.2020