Siðareglur geislafræðinga
Siðareglum þessum er ætlað að vekja geislafræðinga til umhugsunar um siðferðilegar og faglegar skyldur við dagleg störf, ásamt því að vera til stuðnings og aðhalds.
- Geislafræðingur skal rækja starf sitt án manngreinarálits og sýna sjúklingi fulla virðingu sem einstaklingi.
- Geislafræðingi ber að virða rétt sjúklings. Hann skal gæta þess að vernda rétt hans til einkalífs og líta á allar upplýsingar um hann sem trúnaðarmál.
- Geislafræðingur skal nýta tiltækan myndgerðarbúnað í samræmi við kunnáttu sína og viðurkenndar rannsóknaraðferðir. Hann skal nota sérþekkingu sína að fremsta megni til að vernda sjúklinga, sjálfan sig, annað starfsfók og almenning fyrir óþarfa geislun.
- Geislafræðingur skal eftir því sem tök eru á útskýra fyrir sjúklingi eðli og framkvæmd rannsókna.
- Geislafræðingi ber að sinna starfi sínu af vandvirkni og samviskusemi og leitast við að framkvæma svo fullkomna rannsókn sem aðstæður leyfa hverju sinni.
- Geislafræðingur skal ávallt sýna fyllstu gætni og dómgreind í starfi og jafnan haga störfum sínum þannig að þau verði stéttinni til sóma.
- Geislafræðingur skal byggja starf sitt á rannsóknum og aðferðum sem byggja á fræðilegum niðurstöðum og viðurkenndri reynslu.
- Geislafræðingi ber að viðhalda faglegri þekkingu og endurnýja hana. Geislafræðingur skal láta starfsfélaga njóta góðs af reynslu sinni og líta á fræðslu sem ljúfa og sjálfsagða skyldu.
- Geislafræðingi ber að sýna faglega og félagslega samstöðu með öðrum geislafræðingum sem og öðrum heilbrigðisstéttum.
- Geislafræðingi er skylt að auðsýna stéttarbróður drengskap og ber að forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf hans.
- Það er skylda hvers geislafræðings að gera stjórn FG viðvart ef ástæða þykir vegna misferlis eða vanhæfni stéttarbróður í starfi. FG vísar málinu til siðanefndar félagsins ef þurfa þykir.
- Geislafræðingur má eingöngu auglýsa starfsemi sína eftir þeim reglum sem kveðið er á um í lögum um lækningaleyfi.
- Starfandi geislafræðingur skal vera félagi í FG, styðja það á allan hátt og efla samheldni og gildi stéttarinnar.
- Geislafræðingur ætti ekki að gefa kost á sér til stöðu, ef FG hefur ráðið félagsmönnum frá því að sækja um hana.
- Geislafræðingur skal virða lög og siðareglur FG og fara eftir þeim í hvívetna.
Siðareglur þessar voru samþykktar 19. mars 2000.