02.08.12

Námsdagur um mikilvægi tilfinningatengsla foreldra og ungbarna

Miðstöð foreldra og barna standa fyrir námsdegi í samstarfi við Þerapeiu, Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd, Embætti landlæknis og Barnaverndarstofu. Námsdagurinn verður föstudaginn 31. ágúst nk. kl. 9-16 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins.

Markhópur er fagfólk sem starfar í barnavernd, félags- og heilbrigðisþjónustu auk kennara og nema á félags- og heilbrigðisvísindasviði háskóla.

Námsdagurinn fer fram á ensku og er yfirskrift dagsins "Understanding why some mothers find it hard to love their babies". Fyrirlesari er Dr. Amanda Jones.

Auglýsing með frekari upplýsingum (PDF)

Dagskrá (PDF)

Nánari upplýsingar og skráning:
Þerapeia s: 562-3990 / netfang: terapeia@simnet.is.

Þátttökugjald er kr. 15.000 (10.000 fyrir nema) og greiðist á reikning Arionbanka nr. 0336-26-9940 kt. 620587-1339 (vinsamlegast sendið staðfestingu á terapeia@simnet.is).

<< Til baka




Search



Change Fontsize