30.07.12
Lýðheilsusjóður 2012
Embætti landlæknis auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Lýðheilsusjóði.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu í þeim tilgangi að stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Áhersla er lögð á að verkefnin séu til eflingar lýðheilsu með áherslu á eitthvað af eftirfarandi þáttum: áfengis- og vímuvarnir, tóbaksvarnir, heilbrigða lifnaðarhætti eða geðrækt.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á vef embættisins.
