Viðbrögð landlæknis vegna ábendingar í fréttaflutningi
Í kvöldfréttum RÚV 28. júní var greint frá alvarlegu heilsutjóni sem aldraður maður hafði orðið fyrir. Var því haldið fram að mistök hefðu átt sér stað við greiningu vandamálsins og að þau mætti rekja til niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Í samræmi við lögbundið eftirlitshlutverk sitt ákvað landlæknir strax að taka málið til skoðunar og hefur þegar kallað eftir frekari upplýsingum um það. Að fengnum nauðsynlegum gögnum mun landlæknir skoða þau til að greina eðli vandans og bregðast við í samræmi við lög um landlækni og lýðheilsu. Í þessu samhengi vill landlæknir vekja athygli á að hann hefur allt frá því að efnahagshrunið átti sér stað safnað upplýsingum um áhrif þess á heilbrigðisþjónustu og sú athugun sem hér um ræðir er liður í því eftirliti.
Landlæknir minnir á að þeir, sem telja veitta heilbrigðisþjónustu ekki uppfylla eðlilegar gæðakröfur, geta komið ábendingum til embættisins um það sem þeir álíta að miður hafi farið. Telji menn að starfsfólk heilbrigðisþjónustu hafi gert mistök, vanrækt skyldur sínar eða sýnt af sér óviðurkvæmilega háttsemi í starfi getur viðkomandi lagt fram formlega kvörtun til Embættis landlæknis. Allar slíkar ábendingar eða kvartanir eru teknar til skoðunar í samræmi við ákvæði laga um landlækni og lýðheilsu. Nánari leiðbeiningar um þessi atriði er að finna á vef embættisins.
