Ný skýrsla um tóbaksneyslu á Íslandi
Framkvæmd var símakönnun í mars og apríl 2012 til að kanna tóbaksneyslu Íslendinga. Um hefðbundna könnun á tíðni reykinga var að ræða en ítarleg könnun á notkun reyklauss tóbaks var einnig gerð.
Úrtak karla var óvenjustórt eða ¾ hlutar þátttakenda vegna spurninga um notkun reyklauss tóbaks í nef og munn. Niðurstöðurnar staðfesta lækkandi tíðni daglegra reykinga á Íslandi hjá báðum kynjum sem mældist 14.2%. Lágt hlutfall karla taka daglega í nefið eða 1.9% og 3.1% sjaldnar en daglega. Hærra hlutfall tekur tóbak daglega í vörina eða 3% og 1% tekur sjaldnar en daglega í vörina.
Niðurstöður könnunarinnar sýna að töluvert sé um að ungir karlmenn bæði reyki og taki tóbak í vör. Út frá niðurstöðum um magn tóbaksnotkunar og þróun á sölu neftóbaks má ætla að stærstur hluti framleiðslu ÁTVR á íslensku neftóbaki sé notaður í vör.
Lesa má nánar um niðurstöður könnunarinnar í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar:
Talnabrunnur. 6. árg. 5. tbl. Júní 2012 (PDF)
Skýrslan á vef embættisins:
Tóbakskönnun mars-apríl 2012 (PDF)
Viðar Jensson
verkefnisstjóri
