28.09.09

Reyklaus bekkur 2009-2010 - skráning hafin

Samkeppnin Reyklaus bekkur er hafin og er hún nú haldin í ellefta sinn hér á landi. Skráning er hafin en allir 7. og 8. bekkir á landinu geta tekið þátt, svo fremi að enginn nemendanna reyki. Skrá þarf bekki í síðasta lagi 6. nóvember 2009.

Þátttaka í samkeppninni hefur alltaf verið mjög góð enda til mikils að vinna - þ.e. að allir nemendur séu reyklausir. Einnig fá allir nemendur umbun fyrir að taka þátt; litla gjöf eftir áramót. Í lok janúar og í mars verða svo dregnir út nokkrir bekkir sem vinna til glæsilegra verðlauna. Meðal vinninga eru bakpokar og geisladiskar.

Vegleg 1. og 2. verðlaun

Möguleika á að vinna 1. eða 2. verðlaun eiga aðeins þeir reyklausu bekkir sem senda inn hugmyndir að auglýsingum og fræðsluefni um tóbaksvarnir. Lokverkefni er þó ekki skilyrði til þátttöku og allir þátttakendur geta lent í útdrætti fyrir aðra vinninga. Fyrstu verðlaun eru utanlandsferð fyrir einn bekk og önnur verðlaun eru iPod nano fyrir alla í bekknum Eftir miðjan maí verða úrslitin tilkynnt.

Skráning og allar nánari upplýsingar eru á vefsíðu Reyklauss bekkjar: www.lydheilsustod.is/reyklausbekkur

<< Til baka




Search



Change Fontsize