29.06.12

Bið eftir völdum aðgerðum á sjúkrahúsum í júní 2012

Upplýsingar um fjölda sjúklinga á biðlista eftir völdum aðgerðum í júní 2012 hafa verið birtar á vef Embættis landlæknis. Heildaryfirlit yfir stöðu á biðlistum er að finna á síðunni Biðlistar – tölur á vefsetri embættisins. 

Hafa ber í huga að tölurnar ná einungis yfir þá sem beðið hafa 3 mánuði eða lengur eftir aðgerð. Auk upplýsinga um fjölda á biðlista eru birtar upplýsingar um fjölda framkvæmdra aðgerða ásamt upplýsingum um áætlaðan biðtíma þar sem hann liggur fyrir.

Lesa meira: Greinargerð með samantekt á biðlistum eftir völdum skurðaðgerðum á sjúkrahúsum í júní 2012 (doc) 

Auður Harðardóttir 
sérfræðingur á heilbrigðisupplýsingasviði

Laura Scheving Thorsteinsson
sérfræðingur á sviði eftirlits og gæða

<< Til baka




Search



Change Fontsize