28.06.12

Brjóstagjöf og næring ungbarna á Íslandi

Brjóstagjöf

Út er komin á vef Embættis landlæknis skýrslan Brjóstagjöf og næring ungbarna á Íslandi sem fædd eru 2004–2008. Skýrslan byggir á gögnum skráðum í ung- og smábarnavernd Sögukerfisins á öllum heilsugæslustöðvum landsins.

Helstu niðurstöður þessarar úttektar sýna að brjóstagjöf er algeng og almenn hér á landi. Þrátt fyrir að hlutfallslega fá börn séu eingöngu á brjósti til hálfs árs aldurs (8%), eins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ráðleggur, eru ¾ allra barna á Íslandi enn á brjósti að einhverju leyti á þessum aldri. Þá er það ánægjuleg þróun að þeim börnum virðist fara fjölgandi sem eru lengur á brjósti.

Höfundar skýrslunnar eru Hildur Björk Sigbjörnsdóttir og Bryndís Elfa Gunnarsdóttir.

Lesa meira: Brjóstagjöf og næring ungbarna á Íslandi sem fædd eru 2004–2008 (pdf)

Hildur Björk Sigbjörnsdóttir
verkefnisstjóri

<< Til baka




Search



Change Fontsize