28.06.12

Fréttir af áhrifum díklófenaks ekki nýjar af nálinni

Nokkur fjölmiðlaumfjöllun hefur orðið undanfarna daga um lyfið díklófenak í kjölfar danskra fjölmiðlafregna um aukaverkanir þess. Sumir sjúklingar sem notað hafa þetta lyf hafa í kjölfarið orðið nokkuð óttaslegnir og einhverjir þeirra hafa meðal annars haft samband við Embætti landlæknis, Öryrkjabandalagið og ýmsa lækna.

Ástæða er til að undirstrika að þær rannsóknaniðurstöður sem fjölmiðlar hafa verið að fjalla um nú eru ekki nýjar af nálinni, heldur eru liðin meira en 5 ár frá því að þær fyrstu birtust og ekkert nýtt hefur verið að koma fram í málinu nú.

Embætti landlæknis hafði samband við Gunnar Gíslason lækni, einn þeirra vísindamanna sem að baki þessum rannsóknum standa, til að fá að vita hver kveikjan væri að þessari fjölmiðlaumfjöllun nú. Kveikjan er að fréttamaður hjá danska ríkisútvarpinu hafði samband við Gunnar til að afla fregna af gigtarlyfjum og áhættu á hjartasjúkdómum.

Sú niðurstaða rannsóknarteymis Gunnars að díklófenak væri áhættuþáttur fyrir hjartasjúkdóma vakti nokkra athygli blaðamannsins, og þaðan kom fregnin í íslenska fjölmiðla. Íslenskir blaðamenn hafa vafalaust tekið eftir að talsmaður rannsóknateymisins var íslenskur og það kann að hafa aukið vægi fréttarinnar í íslenskum fjölmiðlum. Niðurstöður Gunnars og félaga hafa verið kunnar íslenskum læknum í nokkurn tíma þannig að ekki er ástæða til sérstakra viðbragða nú.

Lyfjastofnun Evrópu er að kanna þetta mál og hefur verið að því síðan í fyrrahaust, þegar danska Lyfjastofnunin hafði frumkvæði að því að það yrði skoðað. Þegar niðurstaða Lyfjastofnunar Evrópu liggur fyrir, sem ætti að gerast seinna í sumar, munu íslenskar stofnanir taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til sérstakra viðbragða, og byggja þá ákvörðun sína á niðurstöðu Lyfjastofnunar Evrópu.

Þangað til er ekki ástæða til annars en að halda ró sinni, samanber fréttir á vef norsku Lyfjastofnunarinnar um lítillega aukna áhættu af völdum þessa lyfs.

Ingunn Björnsdóttir
verkefnisstjóri

<< Til baka




Search



Change Fontsize