27.06.12

Leiðbeiningar um greiningu astma hjá íþróttafólki

Fótboltamenn í leik

Í dag, á alþjóðlegum degi öndunarmælinga, koma út á vef Embættis landlæknis nýjar leiðbeiningar um greiningu astma hjá íþróttafólki. Astmi er algengur bólgusjúkdómur í öndunarfærum sem einkennist af endurteknum köstum af mæði, hósta, surgi, þyngslum fyrir brjósti og slímuppgangi.

Í leiðbeiningunum er m.a. að finna samantekt verkferla til að auðvelda greiningu astma hjá íþróttafólki og einnig fylgir listi yfir þau lyf sem eru leyfð og einnig þau sem eru á bannlista.

Höfundar leiðbeininganna eru Dóra Lúðvíksdóttir, sérfræðingur í lungna- og ofnæmissjúkdómum, og Reynir Björn Björnsson, heimilis- og íþróttalæknir.

Lesa meira: Leiðbeiningar um greiningu astma hjá íþróttafólki

Hildur Kristjánsdóttir
verkefnisstjóri

<< Til baka




Search



Change Fontsize