Skref í rétta átt
Embætti landlæknis vill koma á framfæri stuðningi við þá jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað í samfélaginu undanfarnar vikur að sumar verslanir hafa takmarkað framboð sælgætis hjá sér og fjölgað tilboðum á ávöxtum og grænmeti. Um leið hefur skapast umræða og aukin upplýsingamiðlun um hollustu til neytenda.
Aðgengi, markaðssetning, verðlagning, fræðsla og samfélagsstraumar hafa til samans mikið að segja um neysluvenjur okkar. Árlegt framboð á sælgæti hérlendis er um 6.000 tonn. Því leikur enginn vafi á þörfinni fyrir umræðu af þessum toga og markvissar aðgerðir, svo sem það að auka framboð á hollari og neytendavænum valkostum.
Líklegt er að aðgerðir forsvarsmanna verslana í því að draga úr neyslu sælgætis og gera aðra hollari kosti enn meira aðlaðandi hafi stutt við vitundarvakningu meðal almennings. Það er því von embættisins að enn fleiri uppbyggilegar aðgerðir, settar fram af faglegri nærgætni og með því langtímamarkmiði að bæta neysluvenjur landsmanna, líti dagsins ljós.
Embætti landlæknis þakkar verslunum fyrir þessi góðu skref í rétta átt og hvetur forsvarsmenn þeirra til að vinna áfram að því að þróa samfélag sem hvetur til heilsusamlegra lifnaðarhátta.
Landlæknir

