Breytingar á ung- og smábarnavernd frá 1. september 2009
Landlæknisembættið hefur gefið út handbókina Ung- og smábarnavernd - Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0-5 ára. Handbókin er ætluð fagfólki en er einnig mjög gagnleg fyrir foreldra ungra barna. Eingöngu er um rafræna útgáfu að ræða og er hún á vefsetri Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is.
Landlæknisembættið hefur ákveðið að taka upp breytt fyrirkomulag á skoðunum í ung- og smábarnavernd. Í stað skoðana við 3½ og 5 ára aldur verða þær gerðar við 2½ og 4 ára aldur barnsins.
Einnig verða tekin í notkun ný tæki til að meta þroska barna. Þau eru PEDS - Mat foreldra á þroska barna og BRIGANCE þroskaskimun. Námsmatstofnun hefur unnið að þýðingu, staðfæringu og forprófun á tækjunum í samstarfi við Landlæknisembættið og Heilsugæslu höfuðborgasvæðisins.
PEDS - Mat foreldra á þroska barna
PEDS (Parent´s Evaluation of Developemental Status) er spurningalisti þar sem foreldrar geta lýst áhyggjum sínum varðandi málþroska, heyrn, fín- og grófhreyfingar, hegðun og almenna þroskaframvindu barns síns. Til að byrja með er mælt með að nota PEDS við skoðun 18 mánaða, 2½ árs og 4 ára barna. Hægt er þó að nota PEDS frá fæðingu til 8 ára aldurs.
BRIGANCE þroskaskimun
BRIGANCE þroskaskimun felst í því að hjúkrunarfræðingur leggur verkefni fyrir barnið. Skimunin nær til margra þroskaþátta og skiptist í þrjú svið: skólafærni, samskiptafærni og hreyfifærni. Hún mælir fín- og grófhreyfingar, málnotkun, orðaforða og málskilning, forlestrarfærni, magnhugtök og þekkingu á persónulegum högum. BRIGANCE þroskaskimun verður lögð fyrir 2½ árs og 4 ára gömul börn samhliða PEDS-matinu þannig að greina megi raunveruleg frávik með meiri nákvæmni.
Það er skoðun Landlæknisembættisins að sú ákvörðun að taka upp þessi tvö skimunartæki styðjist við bestu þekkingu á þroska barna og þeim vandamálum sem íslensk börn eiga við að etja. Ung- og smábarnavernd nær til allra barna og foreldra þeirra og er lykilþjónusta til að styðja við og efla heilsu og velferð barna.
Ung- og smábarnavernd - Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0-5 ára (PDF)
Meira um ung- og smábörn (á þessum vef)
Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur
Landlæknisembættinu
Sesselja Guðmundsdóttir sviðsstjóri
Þróunarstofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
