28.12.10
Spornað við misnotkun lyfja gegn ofvirkni og athyglisbresti
Landlæknisembættið vekur athygli á nýlegri frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins þar sem greint er frá tillögum vinnuhóps um leiðir til að sporna við misnotkun metýlfenidatslyfja.
Felast þær m.a. í því að frumgreining á ADHD (ofvirkni og athyglisbrests) hjá fullorðnum verður undir yfirumsjón geðsviðs Landspítala, hert verður á tilkynningarskyldu til landlæknis og teknar upp breyttar reglur um lyfjaskírteini.
Lesa nánar: Á vef velferðarráðuneytisins: Nýjar vinnureglur til að sporna við misnotkun ofvirknilyfja
