14.12.11

Reykingar í kvikmyndum - umfang og áhrif á velferð íslenskra barna. Breyttur fundartími

Niðurstöður fjölþjóðlegrar rannsóknar um áhrif reykinga í kvikmyndum á börn og unglinga verða kynntar í sal Þjóðminjasafns Íslands þriðjudaginn 20. desember 2011, kl. 11:30-13:00. Fundarstjóri verður Þórólfur Þórlindsson prófessor.

Undanfarin tvö ár hefur Landlæknisembættið, áður Lýðheilsustöð, fyrir hönd Íslands unnið að rannsókn á áhrifum reykinga í kvikmyndum á evrópsk börn og unglinga. Fimm önnur Evrópulönd tóku þátt í rannsókninni, Ítalía, Holland, Þýskaland, Skotland og Pólland.

Þetta er stærsta rannsóknin sem gerð hefur verið um þetta efni og tóku yfir 16 þúsund börn og unglingar í ofangreindum löndum þátt í henni, þar af rúmlega 2100 frá Íslandi.

Niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar í sal Þjóðminjasafns Íslands þriðjudaginn 20. desember 2011.
Dagskrá á kynningunni er á þessa leið:

  • Þórólfur Þórlindsson, prófessor við Háskóla Íslands: 
    Rannsóknir og tóbaksvarnir í sögulegu samhengi
  • Sólveig Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Embætti landlæknis: 
    Rannsóknaraðferð
  • Stefán Hrafn Jónsson, lektor við Háskóla Íslands: 
    Niðurstöður rannsóknarinnar
  • Umræður og fyrirspurnir úr sal 

 

Að fundi loknum verður boðið uppá veitingar. Gestum er velkomið að skoða sýningu Þjóðminjasafnsins Þetta er allt sama tóbakið.

Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á sögu tóbaksnotkunar og baráttuna gegn henni allt frá upphafi á 17. öld fram til um 1990. Til þess eru notaðir gripir og ljósmyndir frá Þjóðminjasafni, gripir og gögn frá Krabbameinsfélaginu og tónlist sem notuð var í baráttunni gegn reykingum.

Skráningar á fundinn sendist á netfangið solveig@landlaeknir.is


Sólveig Karlsdóttir

verkefnisstjóri

<< Til baka




Search



Change Fontsize