Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor við Hjúkrunarfræðideild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2024

Umsóknarfrestur

30.05.2024

Lektor við Hjúkrunarfræðideild

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu lektors við Hjúkrunarfræðideild HA. Einnig er möguleiki á ráðningu í hlutastarf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leitað er að öflugum einstaklingi til að annast kennslu, rannsóknir og stjórnun við Hjúkrunarfræðideild og í framhaldsnámi í heilbrigðisvísindum. Næsti yfirmaður er deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri.

Staðan er veitt frá og með 1. jan 2025. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við HA. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á sveigjanlegt nám í hjúkrunarfræði. Námið er fjögurra ára nám til BS prófs. Niðurstöður kannana meðal nemenda sýna ánægju með gæði og innihald námsins. Nám í hjúkrunarfræði er fyrir öll kyn. Samkeppnispróf eru haldin við lok fyrsta misseris og ákvarða hverjir fá að halda áfram námi á vormisseri fyrsta árs. Fjöldi nemenda eftir haustmisseri fyrsta árs er u.þ.b. 75 á hverju ári. Fastráðið starfsfólk deildarinnar er tæplega 20 manna metnaðarfullur hópur, samsettur af akademísku starfsfólki, verkefnastjórum og aðjúnktum. Einnig koma fjölmargir stundakennarar að kennslu í deildinni bæði í fræðilegu og klínísku námi. Árlega hefja um 150 einstaklinga framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við HA.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf frá viðurkenndum háskóla.

  • Þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.

  • Reynsla af kennslu og rannsóknum á háskólastigi er skilyrði.

  • Reynsla af leiðbeiningu meistara- og doktorsnema er kostur.

  • Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, góðrar færni í að miðla þekkingu og skipulagshæfni.

  • Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli. Miðað er við að umsækjandi uppfylli skilyrði í samræmi við málstefnu skólans á starfstíma.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.

  • Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur.

  • Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum, á íslensku eða ensku.

  • Staðfesting af starfsreynslu.

  • Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda.

  • Tilnefna skal þrjá meðmælendur. Æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður umsækjanda í núverandi eða fyrra starfi.

  • Fræðilegar ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að fimm ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Við ráðningu verður miðað við, að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga nr. 63/2006 um háskóla, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglna nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglna nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við HA. Ófullnægjandi umsóknir verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.

Háskólinn á Akureyri hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Sía Jónsdóttir, siaj@unak.is

Sími: 460 8472

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor við Hjúkrunarfræðideild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2024

Umsóknarfrestur

30.05.2024