Fara beint í efnið

Úthlutun úr Lýðheilsusjóði 2024 - Áhersla á að efla geðheilsu og færni

14. mars 2024

Við úthlutun styrkja úr Lýðheilsusjóði var áhersla lögð á að styrkja aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu barna og fullorðinna og efla félagsfærni ásamt því að draga úr einmanaleika. Voru styrkþegar tilkynntir við athöfn í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti í gær. Önnur áhersluatriði eru áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir, næring, hreyfing og kynheilbrigði.

Úthlutun úr Lýðheilsusjóði 2024. Mynd af styrkþegum

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra tilkynnti um styrki úr Lýðheilsusjóði, sem eru að upphæð rúmlega 92 milljónir króna og renna til 158 verkefna og rannsókna. Fjölbreytt verkefni um land allt sem ætluð eru öllum aldurshópum hljóta styrkina í ár. Við mat á umsóknum fyrir árið 2024 var einnig sérstaklega horft til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.

Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður höfðu fagráð embættis landlæknis metið allar umsóknir sem bárust. Embætti landlæknis annast daglega umsýslu og reikningshald Lýðheilsusjóðs.

Hlutverk Lýðheilsusjóðs er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu og lýðheilsustefnu til ársins 2023.