Starfsgreinaskrár

Ábyrgðaraðili: Landlæknir

Vinnsluaðili: Landlæknir

Tilgangur: Að halda skrár yfir starfsgreinanúmer og önnur tiltekin atriði um einstaklinga sem fengið hafa leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis síðar heilbrigðisráðuneytis og nú landlæknis til starfa sem heilbrigðisstarfsmenn á Íslandi.

Innihald: Gögn um lækna, tannlækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæður sem fengið hafa starfsleyfi gefið út af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti síðar heilbrigðisráðuneyti og nú landlækni.

Form: Rafrænar skrár með upplýsingum um alla einstaklinga sem höfðu leyfi til að starfa sem heilbrigðisstarfsmenn þegar skrárnar voru fyrst gerðar og þeirra sem hafa síðan fengið slík starfsleyfi. Skrárnar eru uppfærðar í rauntíma þegar ný gögn berast landlækni.

Uppruni gagna: Gögn frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti síðar heilbrigðisráðuneyti sem veitti starfsleyfi heilbrigðisstarfsmanna t.o.m. 31. mars 2008. Frá og með 1. apríl 2008 er útgáfa starfsleyfa til heilbrigðisstarfsmanna á vegum landlæknis. Við frumgerð skráar yfir hjúkrunarfræðinga og skráar yfir ljósmæður voru gögn frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti lögð til grundvallar en að auki stuðst við gögn frá Félagi Íslenskra Hjúkrunarfræðinga og Ljósmæðrafélagi Íslands.

Skráningaratriði: Einkvæmt númer heilbrigðisstarfsmanns (s.s. lækna- eða hjúkrunarfræðingsnúmer), nafn, kennitala, dagsetning leyfis og sérgrein ef við á.

Úrvinnsla og birting: Ákveðnar upplýsingar úr starfsgreinaskrám eru birtar á vef landlæknis. Skrárnar eru uppfærðar reglulega. Heilbrigðisstofnanir og aðrir rekstraraðilar innan heilbrigðisþjónustu sem vilja hagnýta skrárnar á rafrænu formi geta fengið þær sendar rafrænt.
 
Saga: Skrá yfir lækna hefur verið haldin hjá Landlæknisembættinu frá upphafi. Skráin var færð á rafrænt form árið 1985. Skrá yfir tannlækna var gerð árið 2003, skrá yfir hjúkrunarfræðinga árið 2005 og skrá yfir ljósmæður árið 2006.

 

Uppfært 29. desember 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli